Einingabær námskeið á grunnstigi


Mögulegt er að sækja fjölmörg sjálfstæð námskeið úr námsbrautum Endurmenntunar. Námskeiðin er hægt að fá metin til eininga í grunnnám á háskólastigi og flest þeirra eru jafnframt kennd í fjarnámi. Þau eru hluti af námsbrautum Endurmenntunar en þær eru m.a. Rekstrar- og viðskiptanám,  Mannauðsstjórnun, Verkefnastjórnun - Leiðtogaþjálfun og Leiðsögunám á háskólastigi.


Námskeiðin eru kjörin fyrir þá sem vilja auka menntun sína samhliða starfi og safna jafnframt einingum í grunnnám á háskólastigi. Verkefni eru raunhæf og hagnýt enda iðulega sett í samhengi við þær áskoranir sem nemendur standa frammi fyrir í eigin starfi. Við þetta bætist að nemendur hafa mjög ólíkan bakgrunn og reynsluheim sem eykur til muna gildi námskeiðanna.


Þátttakendur geta í flestum tilfellum valið milli þess að sækja tíma með öðrum nemendum eða stunda námið í fjarnámi. Fjarnemar sækja kennslustundir á vefsvæði námskeiðsins en sá valmöguleiki stendur einnig þeim sem eru í staðnámi til boða ef þeir missa af tíma.


Forkröfur fyrir námskeiðin er stúdentspróf eða sambærileg menntun. Frekari upplýsingar veitir:
Kristín Birna Jónasdóttir, verkefnastjóri, s. 525-5296, netfang: kristind@hi.is 


Íslenskt nútímasamfélag

Hvenær: 21.09.2010 - 14.10.2010

Námskeiðið fellur undir námsbrautina Leiðsögunám á háskólastigi. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærileg menntun. Námskeiðið, sem mögulegt er að taka hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi, er metið til 6 ECTS eininga á grunnstigi háskóla.

Nánari upplýsingar hér 

 

Skráning

Menning og saga

Hvenær: 19.10.2010 - 06.01.2011

Námskeiðið fellur undir námsbrautina Leiðsögunám á háskólastigi. Inntökuskilyrði eru stúdentspróf eða sambærileg menntun. Námskeiðið, sem mögulegt er að taka hvort sem er í staðnámi eða fjarnámi, er metið til 12 ECTS eininga á grunnstigi háskóla.

Nánari upplýsingar hér 

 

Skráning

Matsfræði - Skoðun I (Haust 2010)

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Í samstarfi við Matsmannafélag Íslands. Bakhjarlar námsins eru verkfræði og náttúruvísindasvið, lagadeild og viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Markmið með námskeiðinu Skoðun I er að kynna ítarlega þrjár meginaðferðir matsfræðinnar. Þjálfun er veitt í reikniaðferðum sem notaðar eru í matsfræðum.
Enn er tekið við umsóknum.

Nánari upplýsingar hér 

 

Skráning

Matsfræði - Skoðun II (Haust 2010)

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Í samstarfi við Matsmannafélag Íslands. Bakhjarlar námsins eru verkfræði og náttúruvísindasvið, lagadeild og viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.


Markmið með námskeiðinu Skoðun II er að gera nemendur hæfa til að framkvæma sjónskoðun og semja tæmandi lýsingu á algengustu gerðum fasteigna.
Enn er tekið við umsóknum.

Nánari upplýsingar hér 

 

Skráning