Starfsþróun og hæfni



 


Öflugt sjálfstraust

Hvenær: 16.09.2010 - 30.9.2010

UPPSELT er á námskeiðið en tekið er við skráningum á biðlista í síma 525 4444.

Ætlað öllum þeim sem vilja styrkja sig og efla eigið sjálfstraust auk þess að hafa jákvæð áhrif á aðra. Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kenna þátttakendum að greina muninn á miklu og litlu sjálfstrausti og ekki síst að kenna aðferðir til að byggja upp og efla sjálfstraust. Kennsla er í formi fyrirlestra, umræðna, verkefna og æfinga.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Takk fyrir mig. Frábært námskeið. Einstakur námskeiðshaldari.”
  • ”Mjög gott námskeið. Gefið mikið á stuttum tíma.”
  • ”Þakka bara kærlega fyrir mig =) ”

Nánari upplýsingar hér 

Skráningu lokið

Facebook sem markaðstæki - grunnnámskeið

Hvenær: 17.09.2010 - 20.9.2010

Facebook náði á árinu 2009 að verða þriðja fjölmennasta "þjóðríki" heims og fer enn stækkandi. Facebook er stærsti samfélagsvefur heimsins og farvegur örrar þróunar nýrrar tegundar markaðssetningar - Social Media Marketing eða Markaðssetningar á samfélagsvefjum.

Skráningarfrestur er til 9. september 2010.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Frábært og þarft námskeið”
  • ”Flott námskeið og frábær kennari. Virkilega gaman! :) Takk fyrir”
  • ”Frábær þjónusta. Mjög góður aðbúnaður og vandað námskeið.”

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Mikilvægir dómar í fasteignaviðskiptum

Hvenær: 21.09.2010 - 22.9.2010

Í samstarfi við Félag Fasteignasala.


Ætlað fasteignasölum.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Gæðastjórnun: Hugmyndafræði, stefna, aðferðir og umbótastarf

Hvenær: 05.10.2010 - 7.10.2010

Ætlað stjórnendum og starfsmönnum sem taka virkan þátt í að byggja upp gæðastjórnun og umbótastarf á sínum vinnustað, hvort heldur er í framleiðslu eða þjónustu. Skráningarfrestur til 27. september.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Þetta var fyrsta námskeiðið mitt hjá Endurmenntun - en ekki það síðasta! Námskeiðið stóð undir væntingum og gott betur.”
  • ”Flott námskeið, vekur áhuga á efninu og mann langar til að læra meira.”
  • ”Mjög áhugavert efni. Greinilegt að kennari býr yfir mikilli þekkingu svo gaman hefði verið að hafa meiri tíma í umræður. Mjög gott að hafa verkefnavinnu með.”

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Facebook sem markaðstæki - fyrir lengra komna -

Hvenær: 15.10.2010 - 18.10.2010

Áfram er haldið þar sem frá var horfið á grunnnámskeiði um Facebook og markaðssetningu. Þeir sem hafa setið námskeiðið Facebook sem markaðsstæki býðst 20% afsláttur af þessu námskeiði.

Skráningarfrestur er til 7. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Microsoft Project - stjórntæki í verkefnum

Hvenær: 20.10.2010 - 28.10.2010

Stjórnun verkefnis krefst þess að markvisst upplýsingastreymi eigi sér stað á öllum stigum verkefnis. Mikilvægt er að fylgjast vel með gangi verkefnis hvað varðar umfang, stjórnun tíma, kostnaðar og gæða. Forritið MS Project er mjög öflugt verkfæri til að halda utan um alla þætti verkefnastjórnunar og miðlun upplýsinga.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur komi með fartölvur með MS Office útgáfa 2007 á námskeiðið.

Skráningarfrestur er til 12. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Markaðssamskipti, almannatengsl og fjáröflun frjálsra félagasamtaka

Hvenær: 25.10.2010 - 26.10.2010

Í samstarfi við Miðstöð þriðja geirans

Námskeiðið er ætlað öllum sem starfa við, eða vilja starfa við markaðssamskipti og/eða fjáröflun frjálsra félagasamtaka. Tilgangur námskeiðisins er að kynna þátttakendur fyrir helstu áherslum og leikreglum. Markmiðið er að auka skilning þátttakenda á þeim leiðum sem best nýtast auk þess að fjalla um verkefni sem hafa náð framúrskarandi árangri hér á landi og erlendis.

Skráningarfrestur er til 18. október 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Bætt þjónusta, ánægðari viðskiptavinir - Að gera gott betra -

Hvenær: 12.11.2010 - 12.11.2010

Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem taka á móti og þjónusta viðskiptavini fyrirtækja og stofnana. Námskeiðið hentar einnig þeim sem starfa við símsvörun og eiga samskipti við viðskiptavini með tölvupósti.

Skráningarfrestur er til 4. nóvember 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Innri gæðaúttektir fyrir stofnanir og fyrirtæki

Hvenær: 17.11.2010 - 18.11.2010

Ætlað þeim sem annast innri úttektir á gæðakerfum. Þátttakendur þurfa að hafa grunnþekkingu á gæðastjórnun og stöðlum fyrir gæðakerfi s.s. ISO 9000, ISO 14000 eða EN 45000.
Skráningarfrestur er til 9. nóvember.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Markviss framsögn

Hvenær: 18.11.2010 - 25.11.2010

Ætlað öllum þeim sem vilja efla hæfni sína í munnlegri framsetningu efnis, s.s. við kynningu verkefna, fyrir verkkaupum, á sviðsfundum, á vinnufundum með samstarfsfólki og við önnur starfstengd tækifæri. Farið er í framsögn, framburð og raddbeitingu. Lögð verður áhersla á verklegar æfingar og persónulega leiðsögn. Takmarkaður sætafjöldi.

Skráningarfrestur er til 10. nóvember 2010.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Vinnugleði - mín vinna, mitt viðhorf

Hvenær: 03.12.2010 - 3.12.2010

Hagnýtt námskeið fyrir alla sem hafa áhuga á að bæta sig, blómstra og auka vinnugleði sína í daglegu starfi. Námskeiðið er nú klukkustund lengra en áður vegna óska um fleiri raunhæf verkefni. Takmarkaður sætafjöldi. Skráningarfrestur til 25. október.

Umsagnir ánægðra þátttakenda á námskeiðinu:

  • ”Þetta var gagnlegt og þarft námskeið á tímum neikvæðni og bölsýni - gekk bjartsýnni og glaðari út í lífið eftir skemmtilega umræðu. Takk fyrir mig!”
  • ”Fróðlegt og gott, fékk mig til umhugsunar og til að velta mínum málum fyrir mér”
  • ”Mjög jákvætt innlegg. Vel uppbyggt. Góðar ábendingar. Skemmtilegt og afslappað. Gott að hlæja saman.”

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

NÁMSKEIÐ vegna leyfis til að gera eignaskiptayfirlýsingar

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Í samstarfi við Félagsmálaráðuneytið


Fyrirvari er gerður um næga þátttöku.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Próf vegna leyfis til að gera eignaskiptayfirlýsingar

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Í samstarfi við Félagsmálaráðuneytið


Fyrirvari er gerður um næga þátttöku.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig

Fyrirtækjasala II

Hvenær: Dagsetning kemur síðar

Í samstarfi við Félag Fasteignasala

Ætlað fasteignasölum.

Nánari upplýsingar hér 

Skrá mig