Fjarnámskeið

Langar þig að byggja upp jákvæðari menningu í kennslustofunni?

Afsláttur af námskeiðsgjaldi.
Snemmskráning til og með 5. október
Almennt verð 40.600 kr. 36.900 kr.

Ekki missa af spennandi námskeiðum! Skráðu þig á póstlista Endurmenntunar HÍ!

Þri 15. okt. kl. 14:00 - 16:00 og fim. 17. okt. kl. 14:00 - 17:00

5 klst.

Elísa Guðnadóttir, sálfræðingur

Námskeiðið fer fram í rauntíma í fjarkennsluforritinu ZOOM.
Upplýsingar um þátttöku í ZOOM.

Námskeið

Fer of mikill tími hjá þér á hverjum degi í að takast á við erfiða hegðun? Situr þú eftir með þá tilfinningu í lok dags að þú hafir ekki náð að koma námsefninu nógu vel til skila eða jafnvel vonleysi, depurð, þreytu eða óánægju? Ef svo er þá er þetta námskeið fyrir þig! Því á þessu námskeiði fá þátttakendur verkfæri til að snúa þessum vítahring við og byggja þannig upp jákvæða menningu og andrúmsloft í kennslustofunni með hagnýtum, einföldum og jákvæðum aðferðum fyrir bekkinn í heild.

Markmið námskeiðsins er tvíþætt: 1) Að þátttakendur átti sig á og skilji hvað ýtir undir og viðheldur erfiðri hegðun hjá einstaka nemendum og hópnum í heild. 2) Að þátttakendur fái í hendurnar verkfæri sem auka líkur á jákvæðri menningu í kennslustofunni ef þau eru nýtt markvisst. Lögð verður áhersla á jákvæðar hegðunar- og bekkjarstjórnunaraðferðir þar sem notkun slíkra aðferða skilur eftir sig meiri tíma til að kenna námsefnið og betri líðan nemenda og kennara í lok hvers skóladags en ef áherslan er á að slökkva elda og losna þannig við erfiða hegðun. Þar sem kennarar hafa ekki mikinn tíma í að nota flóknar og yfirgripsmiklar aðferðir verður lögð áhersla á að kynna aðferðir sem eru einfaldar í framkvæmd og ná til nemendahópsins í heild sinni. Námskeiðið byggist upp á fræðslu, umræðum og verkefnavinnu.

Á námskeiðinu er fjallað um

Samsetningu nemendahópsins.
Eðli hegðunar og viðhaldandi þætti.
Leiðir til að fyrirbyggja erfiða hegðun hjá bekknum í heild.
Leiðir til að kenna bekknum í heild þá færni sem skortir eða er mikilvæg fyrir góðan bekkjaranda og vinnufrið.
Leiðir til að ýta undir og viðhalda æskilegri hegðun hjá bekknum í heild.

Ávinningur þinn

Aukinn skilningur á hvers vegna það er mikilvægt að byrja á að tileinka sér og nota jákvæðar aðferðir fyrir bekkinn í heild áður en unnið er með erfiða hegðun hjá einstaka nemendum.
Aukinn skilningur á af hverju erfið hegðun viðhelst og eykst ef eingöngu er reynt að takast á við hana eða ekkert er gert.
Hugmyndir að aðferðum til að auka vinnufrið, sjálfstæð vinnubrögð og virkni í tímum, samvinnu, fá ró í hópinn, fara eftir fyrirmælum, brjóta upp kennslu með leikjum o.s.frv.
Lærir hvernig er hægt að nota sem fæst orð til að minna á og taka eftir æskilega hegðun.
Bætt líðan og jákvæðari menning í kennslustofunni ef aðferðunum er beitt.

Fyrir hverja

Starfsfólk grunnskóla (kennarar, stuðningsfulltrúar, sérkennarar, þroskaþjálfar, sérkennslustjórar og stigsstjórar). Ráðgjafar sveitarfélaga sem veita ráðgjöf til starfsfólks grunnskóla.

Nánar um kennara

Elísa Guðnadóttir útskrifaðist sem sálfræðingur frá HÍ árið 2008, úr sérnámi í hugrænni atferlismeðferð frá EHÍ árið 2019 og hlaut nafnbótina sérfræðingur í klínískri barnasálfræði árið 2023. Elísa starfaði á Þjónustumiðstöð Breiðholts frá árinu 2009 til 2017 við greiningar á þroska, hegðun og líðan barna og unglinga og ráðgjöf til foreldra og starfsfólks leik- og grunnskóla. Elísa starfaði á Sálstofunni ehf. frá árinu 2017 til ársins 2023. Þar sinnti hún meðferð, ráðgjöf og greiningum vegna hegðunar- og tilfinningavanda barna og unglinga ásamt því að sinna námskeiðahaldi fyrir börn, foreldra og starfsfólk leik- og grunnskóla. Elísa starfar nú hjá Kópavogsbæ sem ráðgjafi farsældar í leikskólum.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Langar þig að byggja upp jákvæðari menningu í kennslustofunni?

Verð
40600

<span class="fm-plan">Fer of mikill t&iacute;mi hj&aacute; &thorn;&eacute;r &aacute; hverjum degi &iacute; a&eth; takast &aacute; vi&eth; erfi&eth;a heg&eth;un? Situr &thorn;&uacute; eftir me&eth; &thorn;&aacute; tilfinningu &iacute; lok dags a&eth; &thorn;&uacute; hafir ekki n&aacute;&eth; a&eth; koma n&aacute;msefninu n&oacute;gu vel til skila e&eth;a jafnvel vonleysi, depur&eth;, &thorn;reytu e&eth;a &oacute;&aacute;n&aelig;gju? Ef svo er &thorn;&aacute; er &thorn;etta n&aacute;mskei&eth; fyrir &thorn;ig! &THORN;v&iacute; &aacute; &thorn;essu n&aacute;mskei&eth;i f&aacute; &thorn;&aacute;tttakendur verkf&aelig;ri til a&eth; sn&uacute;a &thorn;essum v&iacute;tahring vi&eth; og byggja &thorn;annig upp j&aacute;kv&aelig;&eth;a menningu og andr&uacute;msloft &iacute; kennslustofunni me&eth; hagn&yacute;tum, einf&ouml;ldum og j&aacute;kv&aelig;&eth;um a&eth;fer&eth;um fyrir bekkinn &iacute; heild.</span>